|
|
21.03.2008 15:05:12 / bleikitz
Komin tími á blogg... ? spurning... Hvort sem minn tími er kominn eður ei, þá hendi ég inn bloggi við hið snarasta í þetta skiptið... Það er mikið að gerast þessa dagana... Erum byrjuð aðeins á húsinu okkar góða (já fyrir ykkur sem ekki vita að þá erum við byrjuð að byggja aftur og erum að byggja AFTUR í Tröllhólunum, og núna númer 37) Bjarki er akkúrat þessa stundina staddur í borg óttans að vinna efni í gluggana í húsið, duglegur maður sem ég á! Við mæðgurnar erum bara heima í leti, enda kannski ekki mikið annað hægt að gera þegar maður er svona bíllaus, maður verður nú alveg lamaður án þess að hafa bíl. Fórum reyndar í göngutúr í Sóltúnið áðan og svo auðvita aftur til baka Bumbubúinn stækkar og stækkar og hann er orðinn 9merkur, þannig að hann stefnir á að vera um 15-16merkur þegar hann kíkir til okkar sem erum „hinum megin“. Stór og myndarlegur strákur sjálfsagt og við bara bíðum spennt! Mamma búin að prjóna fyrir hann heimferðarfötin og fínt teppi handa honum að hafa í bílstólnum sínum... dugleg hún mamma mín... Vildi óska að ég væri svona myndarleg... kannski seinna... eða ekki!! Sumarið fer svo vonandi að skella á í allri sinni mynd og þá verður nú kátt í höllinni, Bjarki fær svona líka fínt fæðingaorlof og verður tíminn sjálfsagt vel nýttur í húsbygginar... hehe... Ég get ekki beðið eftir þessu sumri... mér finnst þessi vetur vera búinn að vera ansi langur og leiðinlegur... sérstaklega þegar það þarf að koma svona helvP/#&$( mikill snjór... HNUSS!!!!! Alltaf gaman að fá snjó, en öllu má nú ofgera, ég segi nú ekki annað... Hlakka líka til að geta farið meira út að labba... finnst frekar fúlt að geta ekkert hreyft mig að viti... en svona er þetta... maður getur víst ekki fengið allt! Ungfrú Suðurland er svo í næstu viku, við skvísurnar ætlum að skella okkur á keppnina og styðja Elísabetu alveg út í eitt... enda ekki annað hægt... ég spái henni sigri, en spurning hvort ég reynist sannspá, það er nú önnur saga... Voða er þetta samt eitthvað svona glatað blogg hjá mér.. ekki neitt svona rosa markvert til að segja frá, heldur bara nokkrir svona stuttir punktar... en það verður víst að hafa það... enda dottin úr æfingu, og ekki stolt af því... ! Alltaf að fá skammir héðan og þaðan fyrir lélegt blogg og hvað þá með Barnalands-síðuna... FJÚFF! Svo er ég nú bara engu skárri en þetta blessaða fólk í framboði með öll sín kosningaloforð... alltaf að lofa að reyna að bæta mig í blogginu, en þá líður bara lengra og lengra á milli þess sem ég hendi einhverju hérna inn... Og því er ég ekki stolt af... þannig að ég er hér með hætt að gefa einhver loforð um það að þetta blogg muni ná að vakna til lífsins á næstunni eða hvenar ég muni svo blogga næst... Kæra fólk... þið verðir bara að sýna biðlund og kíkja reglulega hingað inn...  Hef það ekki lengar í bili... Þangað til næst... sem gæti jafnvel orðið bara þarnæst ef langt er á milli bloggs...  Bleikitz...
»
06.03.2008 15:10:21 / bleikitz
Svona getur manni nú leiðst... Fann á netinu síðu þar sem maður getur fundið orð sem ríma við allan and#)(#/%=&#/(% Þetta er það sem rímar við Blaka blaka leðurblaka flaka klaka laka slaka Evrópusamtaka afbaka afsaka aftaka aka almanaka alþjóðasamtaka andartaka andvaka arftaka atferlisvaka atvinnuþátttaka aðalverktaka baka bindindissamtaka blóðtaka braka bráðamóttaka byggingarverktaka bændasamtaka dymbilvaka eggjakaka eggjataka eignayfirtaka einstaka eintaka ektamaka eldhaka embættistaka endurtaka endurupptaka fiskveiðisamtaka fiskveiðistjórnunarsamtaka fortaka fríverslunarsamtaka fæðubótarinntaka félagasamtaka félagssamtaka gagntaka gildistaka gjaldtaka glæpasamtaka gígjastjaka hagsmunasamtaka haka handtaka heildarsamtaka heltaka hernaðarátaka hertaka hnúfubaka hollvinasamtaka hraka hrognataka hugtaka hungurvaka hátíðarkvöldvaka húsþaka inntaka jaka kajaka kaka kaupmannasamtaka kertastjaka kosningaþátttaka kraka kristnitaka krókstjaka kvaka kvennasamtaka kvikmyndataka kvöldvaka kynmaka landshlutasamtaka landssamtaka landtaka launtaka launþegasamtaka leigutaka ljósastjaka ljósvaka lántaka líknarsamtaka lögtaka maka meðtaka mistaka mjaka myndataka myndvaka málspaka mótefnavaka móttaka náttúruverndarsamtaka ofnæmisvaka orsaka orðtaka próftaka pönnukaka rafverktaka ragnaraka raka rannsaka ransaka saka samtaka sjómannasamtaka skaka skjaldbaka skúffukaka slóvaka smámistaka spaka staka stjaka stjórnmálasamtaka stjórnmálaþátttaka stríðsátaka stéttarsamtaka stórátaka svaka svartbaka sálarmaka sérstaka sértaka sölusamtaka súrefnisupptaka sýnataka taka tanntaka tilbaka tiltaka tryggingataka tvítaka tékkóslóvaka undirverktaka upptaka vaka valdataka verkalýðssamtaka verktaka verndunarsamtaka vikivaka viðtaka vátryggingartaka yfirtaka ákvarðanataka ásaka átaka íbúasamtaka ísjaka ítaka íþaka ómaka úrtaka þaka þjaka þjóðvaka þvertaka þáttaka þátttaka Afríka Ameríka Bjarka Blöndubakka Búnaðarbanka Eyrarbakka Frakka Friðrika Friðrikka Landsbanka Lanka Rebekka Samvinnubanka Skeljabrekka Tékka aboblóðflokka afbrigðileika afdrifaríka afgreiðslustúlka afkomumöguleika afmarka afmælistónleika afreka afrika afríska afturreka afturvirka afþakka aksturseiginleika alaska albanska aldursflokka alfræðibóka alka alkóhólstyrkleika almáttka altarisdúka altæka alvarleika alþingisbóka ameríska andkvarka andríka annika annmarka arabíska arameíska argentínska arka arkadíska armkrika arnarbakka arnfirska aska asteka atorka atvika atvinnumöguleika augnablika auka aukefnaflokka aumka austfirska austrómverska austurbakka austurlenska austurríska austurrískungverska austurrómverska austurþýska auðbrekka auðmjúka aðalbanka aðalflokka aðgengileika aðlögunarhæfileika aðstoðarstúlka aðstreymisþoka aþenska bakka bakpoka bakþanka bandaríkjastúlka bandaríska bandríska banka bankabóka barka barnabóka barnabókavika barnabótaauka basaltaska basaltkvika baskneska basíska bauka beiska beiskleika belgíska bensíntanka bergkvika berklaveika bernska bika bindiorka birgðatanka biturleika bjálka bjórflaska blakka blanka blaðabunka blaðamennska blaðauka bleika blessunarríka blika blikka blindraletursbóka blokka bláfátæka blíðka blóðflokka bolsévika bolsévíka borgaraflokka borðklukka borðstokka botnfiska botnloka bragðlauka brakka brasilíska braska breika breikka breiðdælska breiðfirska breka brekka breska breyska breyskleika breytileika brjóskfiska brokka brottræka bráðþroska bréfpoka bríka brúka brúska bunka burðarpoka bylgjueiginleika byrjunarerfiðleika byrjunarörðugleika bálka bæheimska bætifláka bóhemíska bóka bókarauka bókmenntaverka bótaflokka búka búkka búlgarska búlka búverka býsanska dagbóka dagsverka dalmatíka danska dansknorska dapurleika dekka dilka diplómatíska dirfska diska djasstónleika doka dramatíska dreka drekka drifloka dymbilvika dálka dómharka dóminíkanska dóminíska dökka dúka dúkka dúnmjúka dýpka dýrka dýrðka efnaflokka efnahagsörðugleika efnaorka efnisauka efnisflokka eftirþanka eggjabakka eggjastokka egypska eiginlegleika eiginleika eignarauka einfaldleika einka einkabanka einleikstónleika einmanaleika einoka einsöngstónleika einþykka ekka eldabuska eldeyjarbanka eldiviðarpoka eldsneytismöguleika ellisljóleika elska endaloka endimarka endurflokka engelska engilsaxneska englandsbanka englumlíka enska epíska erfiðleika erfðaeiginleika erfðaskrárauka erindreka erótíska evangelíska evrópska expressjóníska eyfirska eyjabakka eyrabakka eyrnalokka eyðimarka eþíópska fallvaltleika falska fatatíska fauska faðernismöguleika febrúarloka feginleika femíníska feneyska ferjubakka fermingartíska ferska ferskleika ferðaloka ferðamennska ferðataska ferðatékka ferðaþjónustumöguleika fimleika finnlandssænska finnska fiska fiskveiðimarka fjallamennska fjarka fjarska fjárfestingamöguleika fjárfestingarbanka fjárhagserfiðleika fjárhagsörðugleika fjársterka fjölbreytileika fjölflokka fjölstrokka fjörumarka fjöðrunareiginleika fjúka flakka flaska flatfiska fleka flekka flikka fljótsbakka flogaveika flokka flugdreka fláka flæmska flæðimarka flæðisþéttleika flíka flóka flónska flórenska flökurleika forgengileika forlíka formennska forngríska fornklassíska forystuhæfileika frakkneska framandleika framdrifsloka framkróka framkvæmdabanka framreiðslustúlka framtíðarmöguleika franka franska freka fremrislakka freska frikka froska frumbernska frumleika frávika frænka fræðibóka fræðimennska fríkka fríska frískleika fríðleika frónska fullkomleika fullorðinsbóka fullþroska furðuverka fylgifiska fáka fáleika fálka fárveika fáránleika fáskrúðarbakka fátæka fáviska fækka færeyjabanka færeyska félagsþroska fífilbrekka fífldirfska fíflska fínleika fólska förumennska fúska gagnabanka gagnmerka gagnvirka gallajakka gamanleikhæfileika garðskika gashólka gauka geisladiska geislavirka geometriska georgíska germanska gervihnattadiska gerólíka geðsjúka geðveika geðþekka geómetríska gildleika giska gjábakka gjóska gjörvuleika gjörólíka gleikka glerflaska gleymska gláka glæpaverka glæsileika gosaska gotneska grafarbakka grafíska gregoríanska greikka greinaflokka greiðsluerfiðleika grenska griðka grynnka gráblika grátekka grænka grænlenska gríska grískkaþólska grískrómverska grófleika gróska grúsiska grúska grýtubakka gullfiska guðdómleika gáska gæska gæðaflokka gæðamyndafabrikka gólfdúka góðleika góðmennska góðverka göfugmennska gúmmíhanska gúrka hafnarbakka hafnfirska hakka hallloka halloka hanabjálka handarkrika handbóka handleika handsjónauka handtaska handvirka hanka hanska harka harðbakka haska hauka hebreska heilagleika heildarorka heildarvirðisauka heillaóska heilleika heimabanka heimarislakka heimska heiðarleika hellenistíska hellenska hentugleika herkænska hermdarverka hermikráka hestamennska heypoka hika himneska hitapoka hjakka hjaltabakka hlakka hljómleika hljóðbóka hlutafjárauka hlutafélagsbanka hlutverka hlutveruleika hláka hlíðarslakka hlýleika hnakka hnausþykka hnefaleika hnika hnjúka hnokka hnúka holdsveika hollenska horblaðka hornreka horska hrafnaflóka hrakka hrauka hraunkvika hraðbanka hraðvirka hreindýraskrokka hreinleika hressileika hreyfanleika hreyfiorka hrjúfleika hroka hroðvirka hrukka hryðjuverka hráka hráleika hrímþoka hugbúnaðarpakka hugdirfska hugmyndaríka hugrakka hugverka hvalreka hverfulleika hversdagsleika hvika hvinnska hvílíka hágæðaorka háklerka hálfflaska hálka hálshnykkáverka hálsáverka hámarka hámarksfrávika hámarkshreyfiorka hárlokka háska hátíska hátíðleika háðska hæfileika hægindaauka hægðarauka hækka hættumarka hæverska hégómleika hólka höfuðflokka höfuðáverka höfðabakka höfðabrekka húka húkka húmaníska húnvetnska húsabakka iktsjúka illmennska illska illverka indverska indíánaættbálka indónesíska inka innansveitarkronika innileika innkaupapoka iðka jafnoka jafnsterka jakka jamaíka janúarloka japanska jarka jarðarskika jarðneska jaska jánka jóka jólapakka jólapoka jónunarorka jóðsjúka jörfabakka júgóslavneska júlíanska júlíloka júníloka kakkalakka kaleika kalka kammertónleika kanadíska kanúka kaplakrika kapítalíska karabíska karleiginleika karlmennska kartöflupoka katalónska katólska kaupauka kaupmáttarauka kaþólikka kaþólska keflvíska keltneska kennslubóka kinka kinoka kirkjubóka kirkjuklukka kjarnorka kjálka kjólfrakka klakka klassíska klaufska klerka klikka klukka klíka klíníska klóka klúka kokka kolaorka kolka kommúnistaflokka kommúníska kornflögupakka kostaríka kostnaðarauka kostnaðarmarka kraftaverka krakka krankleika krika krossfiska krukka krunka kráka króka kunnugleika kvarka kveinka kvenleika kverka kvika kvikmyndasjúka kynhlutverka kynþokka kynþroska kænska kærleika kærleiksríka kærleikurviska kínverska kóka kókflaska kólgubakka kómíska kóngsbakka kópeka kórbóka kórverka kölska kúbanska kúka kúreka kúska kýlaveika lafafrakka lakka landskika landslagsmálverka langloka laska lasleika latneska latínska laugarbakka lauka launaflokka lausamennska laxfiska laxárbakka leika leikflokka leikhæfileika leiksloka leikverka leiðsögubóka leka lenska lesendadálka lestrarerfiðleika leysanleika leðurhanska leðurjakka lindarbrekka listaverka litlabakka litríka liðka liðsauka ljóska ljótleika ljóðabóka ljóðelska ljúfmennska ljúka loftstokka loka lokka lukka lukkuláka lurka lyfjaflokka láka lánaflokka lækjarbakka lækka lærdómsríka léttleika lífaháska lífsháska lífsorka líka líparítaska líparítkvika lítillækka lögerfðaflokka lúka lúmska lúterska lútherska lýríska makka malbika manngæska mannkærleika mannsbarka mannvonska marbakka margbreytileika margmiðlunardiska marka marktæka marsloka marxíska maríubakka matarbakka matarpakka maíloka maðka meginflokka meginlandsfleka meika meinloka meistaraverka mekka melkorka melrakka menningarauka mennska merka mexíkanska mexíkóska meðalmennska mikilleika mikka minka minnka miska mislíka miðameríka miðflokka miðsjávarfiska miðundirstúka mjókka mjólka mjólkurflaska mjúka moka mokka moska mukka munka munnvika murka myndarstúlka myndugleika myndverka myrka myrkraverka málaflokka málaloka mállýska málverka málþroska mælistika mælska mínimalíska móka móralska móðursjúka möguleika múkka múslimska músíkalska nafnauka namibíska nemendatónleika nestispakka niðaþoka norska norðlenska norðurameríka norðurbakka norðurkóreska norðurstúka norðurþýska notkunarmöguleika nytjafiska náfrænka námsbóka námsflokka nælonsokka næmleika nærtæka næturþoka nígeríska níska nöturleika nýplatónska nýríka nýstárleika nýtanleika ofbeldisverka ofdirfska ofleika ofurnæmleika oka októberloka olíumálverka olíutanka orgeltónleika orgelverka orka orkuríka orðabanka orðabóka ostabakka pakistanska pakka pappírspoka paprika pekka pensilstrika persneska persónueiginleika persónuleika perúska pikka pjakka planka plastbakka plastpoka platónska plokka poka polka portúgalska praktíska predika prestbakka prestsbakka prédika prófarka prósabóka prússneska prúðmennska pytka páfagauka páska pólitíska pólska póstpoka púka púkka rafklukka raforka rafstöðuorka ragmennska rakka rammíslenska rangtúlka ranka raska raunveruleika rauðka rauðsokka reglustika reglustrika regnfrakka regnþoka reika reimleika reka rekka reykvíska reynsluflokka reynslupakka reynsluríka ritverka rjúka roka rokka rukka rumska runka ruslapoka rykfrakka rykpoka ránfiska ráðkænska ráðríka ríka ríkisbanka ríkisviðskiptabanka rómanska rómantíska rómverska rómverskkaþólska róttæka röska röskleika rúmenska rússneska rýmka safaríka salka saltstauka samloka samningsviðauka samverska samvirka samviska samþykka sandpoka sanka sannleika saxneska segulflæðisþéttleika seinka seinvirka seinþroska seka sementspoka sendierindreka sennileika septemberloka seðlabanka seðlabunka silfurbakka silfurflaska silkimjúka silkisokka sinfóníska sirka siðferðisþroska siðgæðisþroska sjáfselska sjálfselska sjálfvirka sjávarbakka sjávarháska sjómennska sjónauka sjónvarpsklerka sjópoka sjúka sjúkleika skagfirska skakka skandinavíska skandínavíska skanka skarka skarpleika skattleysismarka skattsvika skeika skeiðklukka skelfiska skematíska skika skikka skilningsauka skilningsríka skilvirka skinka skinnbóka skinnpoka skipreika skiptaloka skjalabunka skjalataska skjótvirka skokka skophæfileika skoska skrautfiska skriffinnska skrifstofustúlka skrika skriðdreka skrokka skræka skurðbakka skyldleika skylduverka skynmarka skáka skáldverka skálka skíðisfiska skógarmarka skólabóka skólastúlka skólataska skótíska skúrka skýflóka skýjabakka skýrleika skýstróka slakka slappleika slarka slavneska slembilukka sljákka sljóleika slíka slóvenska slöngulokka smakka smalamennska smeyka sminka smokka smokkfiska smáerfiðleika smáfiska smákrakka smápakka smáskika smástráka smækka smókingjakka snarka snyrtimennska snáka sokka sovéska spanska sparibauka sparisjóðsbóka sparka spartverska spegilsjónauka spennumarka spilamennska sporðdreka sposka sprautupoka spreka spræka spákaupmennska spánska spænska spóka stakka stalíníska starfsloka starfsorka starfsstúlka steikarpoka stelka sterka stika stilka stinnleika stirðleika stjórnarandstöðuflokka stjórnarerindreka stjórnarflokka stjórnarmyndunarmöguleika stjórnmálaflokka stjórnunarhæfileika stjórnviska stjörnusjónauka stjörnuþoka stokka storka strangleika strigapoka strika strjúka stroka strokka stráka stríkka stríðsloka stróka stundaklukka stuttfrakka styrka styrkleika stæka stækka stækkunarmöguleika stærðarflokka stórabakka stórafreka stórauka stórfiska stórmerka stórtónleika stórvirka stóíka stökka stöðugleika stúka stúlka stýristjakka sultukrukka sumarauka sunnlenska suðurafríka suðurameríka suðurameríska suðurkóreska suðurskandinavíska suðurstúka suðurítalska svefnpoka svefnpurka sveigjanleika sveitamennska sveitastúlka svellbunka sverleika svika svissneska sykursjúka sálarháska sálarorka sálarþroska sálmabóka sálsjúka sársauka sáðbakka sænska sænskfinnska sætleika sæðisbanka sérhagsmunaklíka sérhæfileika sértæka sérviska séríslenska sígarettupakka síka síldarstúlka sínka síðrómantíska sólarorka sólbakka sólríka sósíalíska sögubóka söguloka söguríka sölumennska söluvænleika söngelska súrrealíska sýndardiska sýndarmennska sýndarveruleika sýningarstúlka sýrlenska takka takmarka talnadálka tanka taska taugaóstyrka teika tekjuauka tekjumarka tekjumöguleika telpukrakka tepoka tileinka tilfinningaríka tilfinningaþroska tiltæka tilvika tindavodka tinflaska tjakka tjónka tragíska traustleika traðka trukka tryggingaflokka tréplanka trúflokka trúmennska trúverðugleika tuska tuskudúkka tvídálka tyrkneska tæka tærleika tékkneska tíbeska tímafreka tímamarka tíska tíðka tóbaksaska tómleika tónleika tónlistarhæfileika tónverka tölvubanka tölvudiska túlka túlkunarmöguleika ullarflóka ullarfrakka ullarsokka undirflokka undiroka undirstrika undirstúka unglingabóka unglingsstúlka ungverska ungverskameríska unubakka upplýsingabanka uppsjávarfiska upptæka valdahroka valdasjúka valka valmöguleika valska vandvirka vanþakka vanþroska varanleika varmaorka vaska vatnafiska vatnsbakka vaxtarmöguleika vegsauka veika veikleika vekjaraklukka velska verka veruleika verðleika vestfirska vestrómverska vesturafríka vesturbakka vesturíslenska vesturþýska vetrarfrakka vika vikmarka vikuloka villimennska vindjakka vinka vinnslueiginleika vinnuharka vinnustúlka vinnuvika vinstúlka virka virtúósíska virðisauka virðuleika viska vitsmunaþroska viðauka viðburðaríka viðlíka viðmiðunarmarka viðreka viðskiptabanka viðvika vodka voka vonska vortónleika vængendakvika víka víkka víkverska vínflaska víðleika víðtæka vöruflokka yfirborðsmennska yfirflokka yfirfrakka yndisauka yndisþokka Íslandsbanka Útvegsbanka áfengisstyrkleika áferðareiginleika ágústloka áhersluauka áhrifaríka áhugamennska áhættuflokka áka álfabakka álitsauka álka álpoka álíka ánamaðka áorka árangursríka árbakka árbóka áreiðanleika ársloka ársverka ástralska ástríka áverka áþekka áþreifanleika æska æskuverka ætlunarverka ættbálka ættflokka æviloka ævintýramennska ævintýraveruleika éljabakka íranska íraska írska íslamska íslenska íslenskameríska ísraelska ítalska ítreka óafturtæka ódauðleika óendanleika ófalska ófríska ófullkomleika ógildingarannmarka óheiðarleika óhreinka óhreinleika óhæfuverka ókunnugleika ókynþroska ólafarhnjúka ólukka ólympíuleika ólíka ómennska ómöguleika ópólitíska óraunveruleika óræka óróleika óska óskeikulleika óskiljanleika óstyrka óstöðugleika ósveigjanleika óvirka óviska óvissumarka óþekka óþokka óþroska óþurrka öfundsjúka ömurleika önfirska örfoka örlagaríka örleika örorka örðugleika öskubakka öskubuska útiloka útiverka útkjálka útlenska útvíkka þagmælska þakka þakleka þanka þankastrika þekka þeldökka þemavika þingeyska þingflokka þinglýsingabóka þingmennska þjarka þjónustustúlka þjóðbanka þjóðflokka þoka þokka þorska þorskfiska þorskpoka þrauka þrjóska þroska þroskamöguleika þrumuklakka þruska þurrka þvermóðska þverstrika þvottapoka þvílíka þykka þynnka þéttleika þönglabakka þýska þýskíslenska
Það er nú margt í þessu sem ég skil ekki alveg hvernig að ríma... en það er nú allt annað mál...
Kíktu á þitt nafn... http://elias.rhi.hi.is/rimord/
»
18.02.2008 13:06:17 / bleikitz
Núna er komið að ykkur kæru lesendur... ef það eru þá einhverjir lesendur... Endilega að vera með og svara þessum lista og þá sé ég kannski hvort ég nenni að blogga meira ef það eru einhverjir sem kíkja ennþá hérna inn... 
*Miðnafnið þitt* *Aldur* *Single or Taken* *Uppáhalds bíómynd* *Uppáhalds lag* *Uppáhalds hljómsveit* *Uppáhalds búð* *Tattoo eða göt* *Þekkjumst við persónulega* *Hver er tilgangurinn með lífinu* *Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum* *Myndirðu þegja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli* *Besta minningin þín um okkur* *Myndir þú gefa mér nýra* *Segðu eitthvað skrýtið um þig* *Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik* *Getum við hist og bakað köku saman* *Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega* *Talarðu eða hefurðu talað illa um mig* *Finnst þér ég góð manneskja* *Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið* *Finnst þér ég aðlaðandi* *Hverju myndir þú vilja breyta í mínu fari* *Í hverju sefurðu* *Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla* *Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman* *Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út*
»
06.02.2008 20:16:12 / bleikitz
Ótrúlega fyndið hvað maður fer að sjá flest alla hluti í öðru ljósi þegar maður eignast barn og líka hvað maður verður þakklátur fyrir hina ólíklegustu hluti sem maður hefði kannski annars alls ekki verið að þakka fyrir yfir höfuð.
Allt í einu eru allar hættur inná heimilinu orðnar miklu sýnilegri þegar maður labbar inn í sitt eigið hús með sitt eigið barn! Ótrúlegustu hlutir eru orðnir hættulegir... Bara það eitt að eiga sófaborð sem er ferhyrnt en ekki kringlótt! Já, sófaborð eru líka hættuleg! Allar snúrur eru loksins teknar saman og reynt að tjóðra þær niður með öllum þeim lífs og sálarkröftum sem maður hefur til staðar! Klósettburstinn er orðinn alveg BANN BANN BANN! Enda vel falin á bak við klósettið! Alltaf að muna eftir að láta kalda vatnið renna eftir að heita vatnið var notað! Passa uppá að fjarstýringar séu uppá hillu, því ekki er nóg með það að takkarnir geta poppað úr ef litlir fingur eru að kroppa heldur eru batteríin líka STÓRhættuleg! Það er svo margt sem maður fer að pæla í! Eins og núna... þá keyri ég bara ekki yfir 90km hraða þegar ég er utanbæjar, er bara orðin skíthrædd við fullt, FULLT af fólki í umferðinni! Ýti alltaf á takkana á svona gönguljósum, lýt vel og vandlega til hægri, svo til vinstri og svo aftur til hægri áður en ég geng yfir götu! Þetta er bara brotabrot af því sem ég er farin að “passa” mig á að gera, eða þið vonandi skiljið hvað ég meina... þetta er nefninlega svo ótrúlegt hvað maður fer að pæla mikið í svona litlum og “ómerkilegum” hlutum sem maður spáði ekki einu sinni í þegar maður var barnlaus! Svo þetta með þakklætið... það er líka alveg þrælmagnað... svona hversdagslegir hlutir eins og að fara í sturtu og fara á klósettið, setja í þvottavélina, elda matinn, fara í búðina, sitja fyrir framan tölvuna... þetta eru bara hlutir sem maður verður virkilega að skipuleggja stundum... Já, ég sagði SKIPULEGGJA!! T.d. þegar ég fer í sturtu þá hefst rútínan, finna til fötin sem ég ætla að fara í og handklæði, finna til dót og fara með inná baðherbergi, taka klósettrúlluna og setja uppá borð og dobla svona skottuna mína til að koma inná bað til að leika á meðan mamman fer í sturtu... jább... svo er sturtað sig í flýti, þurrkað og klætt sig! Á meðan ég er svo að hafa mig til fær litla daman að fara í bað að bursla smá, mér til mikillar hamingju finnst henni fátt skemmtilegra en að fara í bað og þessvegna eru hennar baðferðir stundum um hálftími, og næ ég þá á meðan að þurrka á mér hárið, slétta og hafa mig svona almennilega til og fer svo og tek hana upp úr baðinu og græja hana... Já, svotil allur morguninn fer í þetta! Núna kemur semsagt af þakklætinu... það er ekki það að mér finnist leiðinlegt að við mæðgurnar séum að stússast inná baði í kannski 2tíma í einu að sjæna okkur til, alls ekki... Það er bara það að maður verður svo þakklátur fyrir þann tíma sem maður fær fyrir sjálfan sig þegar maður fær að fara einn í sturtu eða bara fara ein á klósettið eða að fara ein í búðina, núna er það orðið svona quality time hjá mér... fá að fara einhvert ein, þó ég sé alls ekki í afslöppun, bara í búðinni eða eitthvað... en það er svo skrítið að maður er svo þakklátur fyrir þessar nokkrar mínútur á dag sem maður getur gert eitthvað einn... Vil nú samt ekki að þið blogg-lesarar haldi að mér leiðist að vera með barnið mitt! Alls ekki sko! En bara, kem einhvernvegin ekki orðum að þessu hvernig þessi tilfinning er! Jæja... ekki lengra í þetta skiptið...
»
01.09.2007 10:06:40 / bleikitz
Jæja... þá er ég
mætt aftur. Hef ekki bloggað í rúma 2 mánuði, en núna þori ég
bara ekki öðru... Bryndís að verða eitthvað pirruð á þessu,
já og aldrei að vita nema einhverjir fleiri séu orðin frekar
óþolinmóðir yfir þessu bloggi mínu, þó þeir láti það ekki í
ljós.
Það er ýmislegt búið að
ganga á síðan í Júní!!! Hehe... Við erum búin að festa kaup á íbúð
í Fossheiði 56 og eftir mánuð flytur leigjandinn í henni út og þá
verður bara ráðist inn með kúbein og eitthvað hættulegra en það!
Ætlum semsagt að taka til hendinni þarna, enda er það í rauninni
bara nauðsynlegt. Allt upprunalegt þarna inni og orðið frekar
þreitt. Erum búin að vera í því að kaupa flísar, parket, baðkar,
vaska, eldhús- og baðherbergisinnréttingar! Allt svotil að verða
komið og við bíðum bara spennt eftir því að geta byrjað!
Verð ég svo ekki að segja
aðeins frá útlandaferðinni!!
Tenerife-ferðin var alveg
æðisleg! Við gerðum svosem ekki mikið, þannig séð, vorum aðallega
bara í slakheitum að hafa það kósý í hitanum og sólinni! Kynntumst
reyndar pari þarna þegar ferðin var hálfnuð og fórum með þeim í
Go-Kart og eitthvað... og það vara bara nice... Ég held að það hafi
verði svona það eina sem við “gerðum” af viti, við fórum reyndar
alveg á röltið og svoleiðis og kíktum á ekta götumarkað á
laugardeginum, þar sem ég, NOTA BENE, eyddi 2,5 tíma í að fá mér
fléttur!!! Jebb... ég var orðin frekar þyrst og svöng og illt í
rassinum af þessu, en það var allt þess virði... hehe... Ekkert
smá nice að vera bara með svona fléttur þarna úti, ekkert vesen að
slétta á sér hárið og svoleiðis, bara hent sér í sturtu og þá var
maður bara ready to go!!! Það var nú samt ósköp gott að koma aftur
heim að hitta litlu snúlluna okkar!!!! Við söknuðum hennar frekar
mikið og keyptum eitthvað handa henni á hverjum degi, þannig að hún
fékk nóg af pökkum þegar heim var komið!!!! Ekki slæmt
það!
Svo ég fari nú úr einu í
annað, en þá verð ég að segja frá því hvað Sniglabandið er búið að
gefa út hrikalega gott lag... hehe... Lagið heitir “Selfoss er” og
það er virkilega flott hjá þeim... helstu “karlar og konur”
Selfossbæjar nefnd á nafn og öll “gömlu” staðarnöfnin... Ég verð
bara að viðurkenna það, að þetta er alveg ótrúlega flott hjá þeim
og ég mæli með því fyrir hvern þann sem ekki hefur heyrt þetta lag
að reyna að nálgast það á einn eða annan hátt... It’s a winner!!!!

Bryndís er svo flutt út
til Danmerkur í nám, og það er búið að vera ansi einmannalegt hérna
hjá mér! Vantar oft að geta hitt á hana og svona... en ég hef þá
bara frekari ástæðu til að fara til DK og fara í H&M ...
YEAH!!!!!! Ekki það að ég þurfi að fara í flugvél til að fara í HM
í vor hehe... Því við erum að farað flytja til Danmerkur í
vor... Jebb!!! DK baby here we come!!!! Bjarki ætlar að taka
byggingarfræðinginn þarna úti í staðin fyrir að taka hann á 5,5 ári
þá getur hann tekið hann á 3,5 ári! Þannig að það er eins gott að
þið, kæru vinir, farið að safna ykkur fyrir ferð út!!!!!
hehe...
En jæja... ég held að
þetta sé nóg í bili...
En ég vil minna á Amelíu
Ránar bloggið hérna fyrir neðan...
Later...
Bleikitz...
BLOGG UM AMELÍU RÁN!!!
Það er aldeilis
mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast um litlu skvísuna!
Hún er bara farin að labba út um allt og blaðrar út í eitt...
Tönnslurnar eru orðnar 7 talsins og daman að verða 11 mánaða og
styttist óðfluga í árs afmælið sem verður haldið uppí sumarbústað,
þar sem plássið er ekki alveg að gera sig hérna heimafyrir!!! Hún
er orðin voða dugleg og skilur alveg ótrúlegustu hluti! Nýjasta
æðið er að þegar maður spyr hvar Atli og Gísli séu þá setur hún
aðra hendina upp fyrir haus og gerir “wwwwww” hljóð og þar er sko
STÓRA flugvélin!!! Hehe... Þá er það komið í
bili!
»
22.06.2007 17:35:34 / bleikitz
Þá er ég
mætt og til í tuskið... hehe... Já, það er nú heldur betur
langt síðan ég bloggaði síðast... HNUSS! Þetta er náttúrulega
til háborinnar skammar, en þó virðist ekki nema 1 manneskja
vilji að ég bloggi og það er hún Bryndís mín... Ætli ég reyni
ekki að vera góð vinkona og bloggi fyrir hana, þó við
hittumst eða heyrumst nánast
daglega...
Það er nú
heldur betur margt búið að gerast síðan í lok mai... Við erum
semsagt flutt (ég vil ekki setja inn heimilisfangið, því maður veit
aldrei hver er á netinu ) og erum ennþá að koma okkur fyrir og
taka upp úr kössum, þó að sumum sé lokað aftur og skutlað uppá
háaloft, það er nú ekki eins og maður hafi einhvern auðan fermeter
hérna sem þarf að fylla upp í hehe... óóóNEI! Það er meira svona
á hinn veginn
Senn líður svo
að því að Bjarki fari í sumarfrí í fyrsta skipti á ævinni, já...
þetta getur hann kallinn!! Við ákváðum að vera nú svolítið grand
á því og pöntuðum okkur ferð til Tenerife í gær og verðum í 7
nætur... Þetta er ferð í tilefni 25ára afmælis Bjarka og við
ákváðum líka að skella okkur út núna, því maður veit ekkert hvort
tími gefst til (já eða peningar) á næstunni þegar Bjarki er
byrjaður í skólanum... Þannig að við gripum nú gæsina heldur betur
heita, og svona líka ljúffenga gæs !! Ég get eiginlega ekki
beðið eftir því að fara því það eru liðin 10 ár síðan ég fór síðast
til sólarlanda... Já... 10 ár!!! Hvorki meira né minna... ótrúlegt
hvað tíminn líður hratt!!!
 
Svo er ég nú
heldur betur að farað gera spennandi hluti í ágúst... hehe... Ég
er að fara á silvursmíða námskeið með henni ömmu minni. Það finnst
sjálfsagt flest öllum frekar fyndið að verað fara á svona námskeið
með ömmu sinni, en það var nú eiginlega hún sem ýtti mér út í
þetta, með diggri aðstoð mömmu. Ég held samt að þetta verði bara
rosalega gaman, og ef þetta er eitthvað sem mér finnst MJÖG
spennandi að þá ætla ég á fleiri námskeið og reyna að gera eitthvað
gott úr þessu...
Jæja... þá er
ég búin með minn kvóta, en ég minni á bloggið um Amelíu Rán hérna
fyrir neðan mitt blogg... en ég bendi fólki þó á, að það er
einungis fyrir þá sem hafa áhuga á þeim lestri, ef áhuginn er ekki
fyrir staðar þá bendi ég á kommentarann og dónaleg og leiðinleg
komment eru afþökkuð og fólki er bent á að kurteisi kostar ekki
peningar...
Until
later...
Bleikitz...
BLOGG UM AMELÍU
RÁN!!!
Jæja, það er
aldeilis hvað litlan mín stækkar... bara orðin 8,5mánaða og er sko
heldur betur komin á ferðina... Farin að standa upp við allt sem
hún nær taki á og taka nokkur skref með...
Hún er farin að
tala aðeins... Aðallega þó að segja: Datt, jæja, mamma, pabbi og
namm,namm... Agalega sætt þegar hún er að babla eitthvað
Hún ætlar svo að
vera hjá mömmu og pabba á meðan við Bjarki erum að spóka okkur í
sólinni á Tenerife með MEGA söknuð í hjarta... 
»
06.05.2007 23:44:50 / bleikitz
Senn
kemur að kosningum... það fer ekki á milli mála! Þú getur
ekki flett einu einasta blaðsnepli sem dettur inn um lúguna
öðruvísi en það sé eitthvað merkt með stóru “X-i” öðrum
bókstaf fyrir framan!
Mér þætti
afskaplega gaman að fá að sjá endanlega tölu með þeirri
heildarupphæð sem það kostar hvern flokk fyrir sig að auglýsa sig
svona vel, leigja sér húsnæði undir kosningaskrifstofu, halda
einhvert “skemmtikvöld” (sem er stjórnast þó aðallega að því að fá
sem flest ungmenni inn til sín í frían bjór og fá þau til að kjósa
sig) Ég er ekki að skilja allt þetta! Mér finnst að hver flokkur
eigi að gefa út sinn lista með þessum kosninga”loforðum”, sem þó
sjaldnast standast, og svo ekki sögunnar meir. Fólk getur lesið
þetta yfir og tekið sína skoðun eftir því! Afhverju að eyða
peningum, sem hlaupa sjálfsagt á þúsundum hundruða í einhverja
kosningaherferð?? Ég bara spyr! Nóg er til að skuldunum hérna á
þessu litla landi! Er ekki ferkar málið að greiða þær upp? Það
þætti mér það eina
rétt!
En nóg um
eyðslu flokkana í
kosningabaráttunni!
Hvernig er
það, getur sami einstaklingurinn bara kúldrast inná Alþingi í tugi
ára án þess að gera eitthvað gagn? Já ég bara spyr! Mín skoðun er
sú að það gerist ekki neitt nema það verði einhverjar alvarlega
miklar mannabreytingar á Þingi! Gott dæmi er nú bara með skóla
landsins, aldrei verða eins miklar breytingar eins og þegar nýr
skólastjóri tekur við, eða miklar mannabreytingar eiga sér stað.
Þetta er kannski ekki alveg viðmiðunarhæft hjá mér en þið vonandi
skiljið í hvaða átt ég er að fara! Afhverju er ekki svona
hámarkstími inná Alþingi? 2 kjörtímabil í senn og svo einhver
pása... en þó aldrei fleiri en 2 í einu?? Afhverju ekki? Er ekki
alltaf verið að segja að unga fólkið í landinu sé það er er að
skapa framtíðina hér og bla bla bla?? Við getum ekkert gert nema að
komast inná Þing! Á Þingi gerast hlutirnir, ótrúlegt en satt!
Leifið unga fólkinu að komast að! Ég segi nú ekki
annað!
Svo er nú
líka eitt sem situr ansi fast í kollinum á mér... og fer virkilega
í taugarnar á mér. Þegar sveitastjórnarkosningar eru afstaðnar og
allir komnir með sitt hlutverk í samfélaginu, afhverju er þá alltaf
fyrst gert vel við íþróttafólk? Ég bara skil það ekki!!! Þarf ekki
að laga fleiri en 1 götu hérna á Selfossi? Þarf ekki að lækka
leikskólagjöldin? Þarf ekki að koma upp einhverjum samkomustað
fyrir unglinga sem ekki hafa aldur í ýmislegt sem við eldri höfum?
Mér finnst nóg komið af þessum íþróttahúsum hérna, mér finnst alveg
vera búið að gera nógu mikið fyrir þetta íþróttafólk í BILI, já í
BILI! Ég er ekki að segja að það eigi bara að segja “Nóg er komið”
Alls ekki. Það eru endalausar þróanir og breytingar í heiminum sem
kalla á allskyns viðhald og uppbyggingar á hinum ýmsum toga! Núna
er nóg komið í BILI fyrir íþróttamenn, farið nú að hugsa um hitt
fólkið í landinu!
En aftur að
Alþingiskosningum!
Sem móðir er
ég auðvita með brennandi áhuga á öllu sem viðkemur þessum litlu
krílum í landinu! Tökum önnur norðurlönd okkur til fyrirmyndar,
hvað fæðingar”orlof” viðkemur! Mér finnst bara alveg sjálfsagt að
ég fái að vera heima með barninu mínu í amk 1ár! Hvernig væri líka
að auðvelda tilvonandi mæðrum aðeins vinnuna með að sækja um þetta
“orlof”. Þetta er sko alls ekkert grín, ég prísa mig nú bara sæla
með það að hafa verið hætt að vinna þegar ég fór að VINNA í þessu!
Því þetta er nú bara hátt í 100%
starf!
Svo að
leikskólamálum...
Ég vil fá
gott leikskóla pláss handa mínum börnum í framtíðinni, ég vil ekki
hafa mikla biðlista og leikskólagjöldin meiga gjarnar lækka! Ég
skil ekki þetta “leikskóli skal vera ókeypis” NEI TAKK! Ég vil
borga fyrir gæslu á börnunum mínum, ég er ekki að biðja um að fá
þetta frítt, þvert á móti. Enda er það bara rugl og vitleysa. Ef
við (foreldrarnir) borgum þetta ekki úr okkar vasa, hver borgar
þetta þá? 16 ára strákurinn sem ekki á nein börn, bara af því að
hann er launþegi og borgar skatt? Er það sanngjarnt?? Nei, það
hefði ég nú ekki haldið! Alls ekki, ég vil ekki borga
leikskólagjöldin fyrir Jón&Gunna því þau eiga fleir börn en ég!
Ég bara kæri mig sko ekkert um það! Ég vil borga fyrir mitt og hana
nú! Ef þessum blessuðu flokkum er svona mikið í mun að berjast
fyrir ókeypis leikskólum, ætti þá ekki að vera mun minna mál að
lækka gjöldin? Væri það ekki ansi stórt skref í mjög góða
átt!?!?!?
Launamál
kennara og leikskólakennara...
kennarar eru
þeir sem kenna börnum okkar í skólun og leikskólum! Afhverju eru
launin þeirra ekki hærri? Mér finnst að launin þeirra eigi að vera
í samræmum við það hvað þau eru að gera! Þau eru að mennta börnin
okkar, börn þjóðarinn! Þetta eru börnin sem fara á Þing, gerst
forstjórar, yfirmenn og umfram allt launþegar og skattgreiðendur!
Viljum við ekki að þau séu vel menntuð og tilbúin í verkefni
framtíðarinnar? HÆKKUM LAUN KENNARA Í
LANDINU!
Hvernig er
svo með þetta blessuðu samgöngumál í
landinu?
Afhverju í
ósköpunum er Suðurlandsvegurinn ekki orðin tvöfaldur? Viljum við
virkilega fá tölu látinn á þeim vegi fara upp í 100, ef ekki upp
fyrir 100 áður en við tökum málin í okkar hendur? Hversu margir
þurfa að láta lífið til þess að þessir “YFIRMENN LANDSINS” taki
málin í sínar hendur og tvöfalda Suðurlandsveginn!?!?!? Afhverju
gildir ekki það sama um umferðina á þessum blessaða Suðurlandsvegi
eins og um áfengi og
akstur??
1
ER EINUM OF
MIKIÐ!!!
Ég held ég
segi þetta gott í bili, ég treysti mér ekki í að fara út í
heilbrigðiskerfið hér á landi og hvað þó um
dómsmálin!!
Bleikitz
kveður að sinni...
Sveitt af
æsingi!
Vonandi finn
ég út úr því hvað ég vil kjósa, annars verður það bara
XBleikitz!
»
03.05.2007 13:51:59 / bleikitz
Það er
allt að gerast...
Bíllinn er
seldur og svo erum við búin að kaupa okkar annan... jájá, nóg að
gera á litlu heimili! Nýji bíllinn heitir Avensis og kemur úr
stoltri og stórri fjölskyldu Toyota-bílanna. Hann er nú ekki nema
5ára gamall og alveg dúndurgóður og sætur
Húsið fer svo
vonandi að seljast, þá getum við tekið endanlega ákvörðun með hvert
skuli flytja og svona.... þetta kemur allt saman með kalda
vatninu...
Hvað
haldiði.... Ég verslaði mér kjól um daginn... Það er nú e-ð sem ég
hef ekki átt í fataskápnum mínum lengi get ég sagt
ykkur!!!
Senn líður að
Eurovision og þá verður sko tekið á því hehe... Anna Rún og
Eiður ætla að koma til okkar í mat og áhorf! Svo kannski br Peiker
á eftir... aldrei að vita... Litlu stubbarnir okkar verða í pössun,
þannig að það er allt skoðað! Mikið hlakkar mig
til!!!
Svo kemur hérna
smá blogg um Amelíu Rán neðst. Þeir sem hafa ekki áhuga á að lesa
um hana ef vinsamlega bent á að hætta lestri og kannski að
kommenta, en góð og vinsamleg komment eru bara vel
þegin!
En jæja... ég hef það ekki lengra í
bili...
Vonandi að fólki líki þessi nýja uppsetning á blogginu hjá mér, að
hafa Amelíu Ránar blogg svona sér... Ég held að þetta verði til
þess að allir finni eitthvað við sitt hæfi!!
Until
later
Bleikitz
BLOGG UM AMELÍU RÁN!!!
Amelía Rán litla
dúllan mín er sko bara að verða stór... á einhverjum 3 vikum lærði
hún að skríða, sitja, klappa saman lófunum og að sýna hvað hún er
stór!!! Algjör gullmoli þessi stelpa sem ég á!! Í gær sat hún í
leðursófanum heima hjá mömmu og hún náði að snúa sér við og
standa/toga sig upp við sætisbakið... algjör örkubolti þettaa barn
sem ég á...
»
11.04.2007 11:06:04 / bleikitz
Hvað
haldiði... ég br mætt aftur í þrusublogg og með nóg af
fréttu... eða við skulum vona það
Það er svona
temmilega mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast... Amelía
Rán baby er komin með 2 tönnslur og sjálfsagt fleiri á leiðinni...
ekki beint gaman útaf pirringnum í henni, en samt alveg ofboðslega
spennandi.... 
Ég fjárfesti í
saumavél í þarsíðustuviku minnir mig og saumaði mér líka svona
fínan bol fyrir þetta Á móti sól ball sem við nenntum svo ekki að
fara á... en það er annað mál... Stefnan er svo tekin á að sauma
sér svona bol/kjól við leggings... spennandi að sjá hvernig það
kemur út... en ég ætla mér svo að sauma e-ð á hana Amelíu Rán líka,
hún má ekki vera útundan
En eins og ég
sagði áðan, þá ætluðum við að skella okkur á ball nokkur saman, en
þegar í hólminn var komið vorum við búin að standa í röð til þessa
að REYNA að kaupa miða í korter eða svo og okkur miðaði ekkert
áfram... Þannig að við fórum br aftur á Selfoss og fórum á Peiker..
Felst allir fóru heim um 2 eða 3, en ég var nú ekki alveg á þeim
buxunum og tjúttaði af mér rassinn og kom ekki heim fyr en kl var
orðin5... ef ekki meira... Takk Erna og Inga Rós fyrir gott og
langt djamm 
Það hlítur að
vera e-ð meira sem ég get
sagt.... Ameía Rán er orðin 6mánaða...
Ótrúlegt hvað þetta líður hratt!!! ÚFF.. áður en ég veit af er ég
að undirbúa fermingu...
!!!!
 
Já, alveg
rétt... Ég er komin með vinnu... Hjá bænum! Ég er svo temmilega
stressuð fyrir því að farað vinna, bæði útaf því að fara frá baby
og líka útaf því ég á sjálfsagt að vera flokkstjóri hjá yngsta
flokknum í unglingavinnunni.... Þetta verður allt saman mjög
fróðlegt að sjá... En ég get þó prísað mig sæla með það að þurfa
ekki að finna dagmömmu hana AR því mamma er svo æðisleg að hún
ætlar að vera með stelpuna í þessa 4 tíma sem ég er að
vinna... 
Bjarki er svo
pottþétt kominn inn í Tækniháskólann í haust, þannig að vonandi fer
húsið að seljast fljótlega svo við getum farið að gera og græja
Mér varð svo
ekki af ósk minni að eignast jakka, þannig að núna óska ég eftir
alvöru myndavél... meða svona megalinsu og alles...
Held það sé
ekki meira sem ég þarf að koma á
framfæri...
Ekki nema það
að ég veit soldið leyndó... nana nanan búbú...
Until next
time...
Bleikitz kveður... 
»
23.03.2007 10:54:58 / bleikitz
Það er nú
liðinn smá tími síðan ég bloggaði síðast, en það er nú svosem
allt í lagi... mín vegna allavegana Ég skellti mér á ungfrú
Suðurland síðustu helgi með Ingu Rós, Ernu, Hebu og Kolbrúnu
(eða mig minnir að hún heiti það) Við skemmtum okkur svona rosa
vel og frekar flott keppni. Það varð reyndar smá óhapp hjá
mér... en það er nú bara hægt að hlæja að því....

Þannig var nú
mál með vexti að Heba byrjaði á því að hella niður hvítvínsglasinu
mínu, sem var nú bara allt í góðu þar sem meirihlutinn fór á dúkinn
en ekki mig eeeeen, það er ekki allt! Þegar stelpurnar í
keppninni voru að koma fram í kjólunum þá rakst ég í rauðvínsglasið
hennar Ingu Rósar og “SPLASH” allt yfir svarta og HVÍTA kjólinn sem
ég var með í LÁNI!!!!!! Það voru góð ráð dýr, þar sem
stelpurnar helltu restinni af hvítvíninu sínu yfir
rauðvínsblettinn, því hvítt á að hreinsa rautt! Þetta dugði nú
aðeins, en samt alls ekki nóg! Daddara... Núna var ég sko í
sjokki!!! Kjólinn ónýtur og við
ætluðum á Pakkahúsið eftir keppnina... En nei! Kolbrún lét
sko ekki deigan síga og fór með mig inn í eldhús og bað þjóna
stelpurnar góðu um að gefa sér afgangs hvítvín, ef þær ættu
eitthvað... Hvítvínið flæddu út um allt og það hefur
sjálfsagt farið vel um heilan líter yfir mig og kjóll....
!!!!! Hahaha.... !!! Kolbrúnu fannst e-ð erfitt
að athafna sig þarna þar sem ég var í kjólnum og þá kom hann
Eiki yfirkokkur og sagði mér br að fara úr kjólnum og þá tæki
þetta enga stund... OG ÞAÐ VAR GERT! Ég stóð semsagt inni í
eldhúsi á leggings og hlírabol einum fata... !!!
Aha.... skemmtilegt!!!!! Núna var kjóllinn orðin vel baðaður
bæði í hvítvíni og sódavatni! Bletturinn var svo til farinn
úr og núna þurfti ég bara að þurrka kjólinn aðeins... Ég
skellti mér í jakkann hennar Kolbrúnar og við strunsuðum
beinustu leið inná næsta klósett sem var með hanndblásara...
sem var karlaklósettið... Helvítis kvennaklósettið var í
hinum endanum! Kjólinn þornaði og ég skellti mér aftur í
hann.... Kvöldinu reddað!! Ég sá svo betur þegar ég var komin
heim, í almennilega birtu að það var nú svona líka falleg
bleik slykja á kjólnum en sem betur fer fór þetta allt saman
úr þegar ég fór með hann í
hreinsun!
Bryndís náði
svo að plata mig með sé á Píkusögur sem var verið að sýna í Hótel
Selfoss í samstarfi við V Daginn og OMG var þetta fyndið!!!!!! Ef
einhverjum gefst tækifæri á að fara á þetta þá ætti sá ekki að hika
við að skella sér!!! Bara fyndið!!!
Vikan er nú
svosem búin að vera voða róleg... Amelía Rán fékk reyndar hita á
föstudaginn síðasta og var með hita í 2 daga, sjálfsagt vegna þess
að hún fékk sprautu á fös... Svo fékk hún reyndar hita aftur á
mánudaginn og það var nú bara vegna þess að hún var að fá
tönnslu... Bjarki fann hana 21mars og þá var skvísan akkúrat 5 og
hálfs mánaða gömul....
Ég býst við
að þessi helgi verði bara róleg, reyndar er Atli bróðir að koma
heim á laugardaginn þannig að það verður voða gaman að sjá hann...
og ég býst líka við að honum eigi eftir að hlakka mikið til að sjá
okkur... þá kannski aðallega Amelíu Rán
Jæja...
eridda ekki komið nóg í
bili...
Later
Bleikitz...
P.S. Mig langar í kápu, helst tvíhneppta eða
stuttan jakka... tvíhnepptan líka... 
»
12.03.2007 10:37:22 / bleikitz
Þá er
kominn mánudagur og hversdagsleikinn er aftur tekinn við og
pelagjöf og bleyjuskipti eiga eftir að ráða ríkjum þessa
vikuna líkt og allar aðrar vikur.
Helgin var
fín, reyndar var nú ekki mikið gert fyrripart helgarinnar, en það
er nú líka ágætt að vera stundum bara í heimagallanum í leti.
Laugardagurinn var svona aktívasti dagur helgarinnar, við fórum út
að labba eftir hádegi með viðkoma á Kaffi Krús og fengum okkur
dýrindis hamborgara þar og ég mæli eindregið með Salsa borgaranum
þarna... Delicious!!! Svo elduðum við
yndislega góðan mat um kvöldið, nautasteik með piparsósu, steiktu
grænmeti og kartöflubátum!!!! NAMMI!!
Sunnudagurinn var letidagur í einu og
öllu!!! Við ákváðum þó um kaffileitið að kíkja smá rúnt og
athuga hvort bærinn hefði nokkuð breyst mikið á einum
sólarhring! Eeeeen.... svo var ekki... Við fengum þó afar
óvænt boð í 1árs afmælisveislu hjá Viktoríu Evu, og svo um
kvöldið fór ég og hitti Bryndísi og Guðrúnu Jónínu og við
skelltum okkur í bíó á myndina Blood Dimond og ég verð að
viðurkenna að ég var ekki mjög spennt yfir því að fara á
hana, en hún kom ótrúlega á óvart... ég fékk algjörlega nýja
sýn á Leonardo DiCaprio og það góða sýn... Þetta var ekkert
smá átakanleg mynd, ótrúleg ég segi ekki meir og
staðreyndirnar eru enn meira sláandi... Og ég mæli með því að
ÞÚ sjáir þessa mynd!! 
En hvað er
samt málið með íslenska bjórinn Kalda... Frekar spes, Bjarki
keypti sér svoleiðis og mér finnst hann eiginlega bara ekkert
góður!!!! Svo er líka smá villa á pappanum sem er utan um
kippuna, ég veit ekki alveg hvort það megi kalla þetta
stafsetningavillu. Það stendur á báðum hliðunum á pappanum
“Bruggsmiðjan Árskógssandur” en svo stendur undir pappanum
“”Bruggað og áfyllt af Bruggsmiðjunni Árskógssandi” sem er
bara rökrétt, en svo stendur ofaná pappanum “Bruggað og
áfyllt af Bruggsmiðjunni Árskógsströnd” Hummm... Ég er nú
ekki langskólagengin en ég myndi nú halda að að það sé maðkur
í mysunni varðandi þetta mál... hehe... Magnað samt hvað
svona merkingar á skiltum, auglýsingar í dagblöðum og einmitt
alls kyns merkingar á umbúðum eru oft með einhverjum
villum... Eins og td var frekar stórt skilti hjá FH heimilinu
(þar sem maður stoppar á ljósunum við og beygir til vinstri
ef maður er á leiðinni á völlinn) og það var semsagt
auglýsingarskilti frá American Style og á því var frekar
girnilegur hamborgari og lógóið þeirra og svo var ör sem
benti í hvaða átt staðurinn væri og fjarlægðin í hann. Svo
stóð undir “Hvert eru að fara?” Jahá.... Er fólk í
alvörunni svona blint á stafsetningavillur!!!! Úff, aumingja
sá sem bjó þetta skilti til segi ég nú bara...
HAHAHA!!!!
Jæja...
Hef það ekki lengra í bili... En endilega segið mér frá
fleiri svona dæmum ef þið vitið
um!
Later
Bleikitz... 
»
05.03.2007 22:36:00 / bleikitz
Fann þetta á netinu og VARÐ að
skella þessu inn!!
Þú ert 90´s barn ef
þú:
Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _
_ _ ]
Þú manst eftir því þegar
það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á
barnaefnið...
Þú færð ennþá "urge" til
að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu
Það var gert út um málin
með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á
kvisti"...
Þegar lögga og bófi var
daglegt brauð
Þegar við fórum í
feluleik þangað til við gátum ekki meir
Þegar við vorum vön að
hlýða foreldrum okkar...
Þú hlustaðir á útvarpið
allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til
að taka það upp á kasettutækið..
Þú manst eftir því þegar
Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir
Þú horfðir alltaf á
America's Funniest home videos
Þú horfðir á Home Alone
1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk
Þú manst eftir því þegar
Jójó voru kúl
Þú horfðir á Batman,
Aladín, Turtles og Pónýhestana...
Þú manst eftir
sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á
puttanum..
Þú manst þegar það áttu
ekki allir geislaspilara
Þú bjóst til gogg þegar
þú varst lítill...
Þú áttir
tölvugæludýr
...eða
Furbie
Þú hefur ekki alltaf átt
tölvu, og það var töff að vera með Netið
Og Windows '95 var
best
Michael Jordan var aðal
hetjan..
Kærleiksbirnirnir
Þú safnaðir
lukkutröllum
Og áttir
vasadiskó
Þú kannt Macarena
dansinn utanað
Þú veist af hverju 23 er
kúl tala
Áður en að Myspace varð
vinsælt,
Áður en Netið kom og
enginn vissi hvað sms var..
Áður en ipod kom til
sögunnar
Áður en PlayStation 2 og
Xbox voru til,
Þegar strigaskór með
blikkljósum voru málið
Og þú leigðir spólur,
ekki dvd,
Og það var eiginlega
enginn með símanúmerabirti
Og þegar við hringdum í
útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að
hlusta á í vasadiskóinu
Áður en við áttuðum
okkur á því að allt mundi
breytast
»
02.03.2007 16:52:14 / bleikitz
Þá er maður
búin að fara í lengingu og ég er svona líka glimrandi ánægð...
Ragga litaði svo á mér hárið í gær og klippti það aðeins til ...
og ég er br nokkuð fín, þó ég segi nú sjálf frá

Ég lennti
svo í því skemmtilega atviki að missa símann minn í gólfið í
Miðgarði í gær, þannig að ég neyddist til að kaupa mér síma
og ég verslaði mér Sony Ericsson Z550i... aðal samlokusíminn
í dag, sagði sölumaðurinn mér... Og hann er br túttugóður!

Hérna er
mynd af kvikindinu....

Eeeeeeeen...
Ég var ekki hætt að eyða... Nei, nei...
Ég fór í dag
í sjónmælingu... og ég er nú barasta frekar hissa að ég skuli sjá
eitthvað yfir höfuð... Sjónin hjá mér var búin að versna ansi
mikið, en það er nú allt eftir að batna... Því ég fjárfesti mér í
gleraugum í dag... Úff... Spurning um að fara núna í alsherjar
sparnaðarátak!!!!
Hehe....
Helgin er svo
framundan og spurning hvað úr henni verður... Kannski maður hafi
það bara rólegt og slaki á....
Jæja... Er
þetta ekki komið nóg í
bili??
Það finnst
mér...
Þangað til
næst...
Later...
Bleikitz 
»
28.02.2007 13:03:38 / bleikitz
Það er
aldeilis að maður að dugleg að blogga... Ég var að spá í að
reyna að blogga daglega en svo fór ég að hugsa og ég hef
svosem ekki frá það miklu að segja... Ég myndi sjálfsagt
drepa lesendur bloggsins míns úr leiðindum með blaðri um
bleyjuskipti og ælur... hehe... Ekki beint spennandi
fréttaefni alla daga
vikunnar...
Hvað um það...
Núna er vikan hálfnuð og það er bara
fínt... Ekki að ég finni dagamun, en það er sama... Ég var einmitt
svo ákveðin í því í dag að það væri föstudagur... Jájá... Þá er ég
hér með búin að græða 2 auka daga í þessari viku! Ég er svo að
öllum líkindum að fara í hárlengingu í kvöld og hlakka mikið til...
Ég er búin að verað safna í þónokkurn tíma og þetta verður sko
hverrar krónu virði !!
Það kom svo fólk að skoða hjá okkur í gær... Systir Hörpu Rutar...
Spurning hvernig þeim hafi lýst á... Við erum svona farin að skoða
markaðinn og erum að spá og spegúlega frekar mikið þessa
dagana...
Amelía Rán dafnar og stækkar með
hverjum degi sem líður og mér finnst hún vera orðin algjör
himnalengja, hún er orðin svo stór!!
Jæja.. Hef það ekki lengra í bili... Magga er komin í
neglur...
Þangað til
næst... Bleikitz...
»
18.02.2007 15:34:10 / bleikitz
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 40534
|